05.07.2015 17:59
Áhugaverð grein í bændablaðinu
Notkun sýklalyfja í landbúnaði tifandi tímasprengja
Áhugaverð grein í bændablaðinu
http://www.bbl.is/frettir/frettir/notkun-syklalyfja-i-landbunadi-tifandi-timasprengja/11446/
Skrifað af þb
11.06.2015 15:59
Torpomoen júni 2015
Stund á milli stríða.
Hér eru Pal og Nils slökkviliðsstjórar/kennarar á námskeiðinu,
veðrið yndislegt og skógareldahætta mikil
Hér eru Pal og Nils slökkviliðsstjórar/kennarar á námskeiðinu,
veðrið yndislegt og skógareldahætta mikil

Skrifað af þb
11.06.2015 15:33
Olso Brannvesen
Noregsferðin gengur prýðilega kaffið fínt og slökkvliðskonurnar almennilegar,
enda ekki á hverjum degi sem þær hitta meistarann.

enda ekki á hverjum degi sem þær hitta meistarann.
Skrifað af þb
21.05.2015 18:13
BMW i8 - Bezti bíll sem ég hef keyrt
BMW i8.
Var að keyra allra bezta bíl sem ég komist í, nýjan BMW i8.
Algjörlega magnaður !
Ekki vissi ég að þessi dagur yrði sá magnaðasti á mínum bílaferli, þá hefði ég farið með fullhlaðinn símann og gefið mér meiri tíma til að taka myndir og myndband.
Þegar ég sá hvaða ökutæki við fengjum að keyra (bara BMW), gat maður ekki beðið eftir að komast að brautinni með BMW i8.
En ég byrjaði að aka nýjum BMW X 5 og sá og fann hvernig nýjasti tölvubúnaðurinn virkaði, árekstarvörn, þegar maður kemur hratt aftan að öðru ökutæki.
Þegar maður átti svona 40 metra í bílinn, bara í makindum, þá sló hann af og svo bremsaði hann alveg ef maður bremsaði ekki sjálfur.
Í framrúðunni sá maður hraðann á bílnum ofl.(Head-up Display), magnað!
Annars var hugurinn alltaf að brautinni með BMW i8. Ég gekk að honum og var svona hálffeiminn við hann. Til þess að komast inn þurfti að bakka inní hann en þegar maður var sestur undir stjórntækin þá smellpassaði allt. Tryggilega festur með bláu belti og ég gat ekki beðið að keyra af stað. Í byrjun fór ég æfingahring með nokkuð krappri beygju sem var búið að bleyta og ekki klikkaði kerfið þar, svo var manni sagt að botna, úff 4,4 sek í hundrað og togið og hljóðið--ótrúlegt.
Þetta er á aksturssvæði NOKIA í Finnlandi. Magnaður dagur.

Skrifað af þb
05.12.2014 20:25
Amíra horfir á sjónvarp
Það er svo spennandi sjónvarpið að hún mátti ekki vera að því að vera með á myndinni.
Nú er breytt veðrið, en Amíra vill frekar vera úti
Skrifað af þb
30.11.2014 13:50
Schafer hvolpa þjálfun
Alltaf gaman að skoða hvað fólk er að gera með hundana sína
https://www.youtube.com/watch?v=r8OGzkNFS8g

https://www.youtube.com/watch?v=r8OGzkNFS8g
Skrifað af þb
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 73
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 163086
Samtals gestir: 34277
Tölur uppfærðar: 3.5.2025 08:21:11