10.03.2013 11:44
Alltaf sól á Kjalarnesi
Það er ekki að spyrja að blíðunni á Kjalarnesi, hér skín sólin á hverfið. Tikurnar hressar í morgungöngu.

Erum enn á uppleið

Hlustum á gargandi fuglana í bjarginu, einn kemur í lágflugi og Amíra fylgist með
Vantar svona 15 tommu felgu

Erum enn á uppleið
Hlustum á gargandi fuglana í bjarginu, einn kemur í lágflugi og Amíra fylgist með
Vantar svona 15 tommu felgu
Skrifað af þb
01.03.2013 21:36
Mjölnis Astró, flottur rakki
Frábærar fréttir af Astró,
Þá hefur fjölgað í Schafer rökkunum til undaneldis eftir að niðurstöður úr mjaðma- og olnbogamyndatökunum komu og er Astró frír bæði í mjöðmum og olnbogum.
Mjölnis Astró lauk á síðasta ári skapgerðarmati hjá HRFÍ með sóma.
Þessi rakki er með fasta búsetu Húsavík og einstaklega geðgóður og hraustur. Hér gefur hann sér tíma í smá myndatöku eftir svaml en honum finnst skemmtilegt að busla

Skrifað af þb
24.02.2013 20:08
Yrja (Mjölnis Assa) í heimsókn.
Það var gaman að fá hana Yrju í heimsókn í dag ásamt Alex, Eisa, Silju og Elvari.
Skrifað af þb
13.02.2013 21:53
Á pallinum er fjör
Það er ekki að spyrja að blíðunni, þá er gott að skella sér á pallinn, og litlu svanirnir synda á bakvið
Skrifað af þb
15.01.2013 11:15
Stuð í snjónum
Mjölnis Amíra skoðar sig um í snjónum, ætlum að para hana í sumar.
Þær gerast nú varla fallegri!
Skrifað af þb
02.01.2013 10:39
Schafer got 2013
ZZZZZZZZ
Nú er verið að skoða að para Mjölnis Amíru, svo að Schafer hvolpar gætu litið dagsins ljós í sumar, hér er Polly með einn í kúri.
Skrifað af þb
15.12.2012 13:12
Schafer hvolpar 2013
Það er ekki ólíklegt að eftir áramótin verði gæða Mjölnishvolpar aftur fáanlegir, eftir langa bið.
Hér er hún Amíra með Þrumu og Úlfrúnu í fjallinu í haust.
Skrifað af þb
16.10.2012 20:58
Góðar fréttir af Yrju.
Við vorum að fá fréttir af olnboga- og mjaðmamyndaniðurstöðum hjá henni Yrju (Mjölnis Össu), en hún fékk A bæði í mjöðmum og olnbogum. Þetta er alveg frábært og óskum við eigendum hennar þeim Alexöndru og Eisa innilega til hamingju með þessar góðu niðurstöður.
Skrifað af þb
14.09.2012 09:05
Mjölnis hvolpar í skapgerðarmati
Astró
Yrja
Nú hafa Mjölnis hvolparnir Astró og Yrja lokið skapgerðarmati með stakri prýði og hafa þá fjórir hvolpar úr þessu goti lokið skapgerðarmati.
Skrifað af þb
22.07.2012 22:42
Schafer hvolpar á árinu
Ekki er ólíklegt að dragi til tíðinda seinna á árinu, en þá gefst ykkur mögulega tækifæri á að eignast fallegan Schafer hvolp hjá Mjölnisræktun.
Hér sjáið þið hvolp úr síðasta goti, Astró og sá er nú orðinn töluvert stærri og flottari í dag. Hann er á leiðinni í myndatöku og skapgerðarmat og verður flottur til undaneldis
Hér sjáið þið hvolp úr síðasta goti, Astró og sá er nú orðinn töluvert stærri og flottari í dag. Hann er á leiðinni í myndatöku og skapgerðarmat og verður flottur til undaneldis
Skrifað af þb
25.05.2012 08:44
Fréttir af Rökkva (Mjölnis Alex)
Við fengum sendar fréttir og myndir af honum Rökkva (Mjölnis Alex).
Hann er fluttur í Eyjafjörðinn og býr þar í góðu yfirlæti hjá nýjum eigendum. Heimilisfólkið þar samanstendur af henni Maríu 19 ára, foreldrum hennar og systkinum, svo er annar hundur á heimilinu, hestar, kindur, hænur, köttur og naggrís, það er því mikið fjör hjá honum Rökkva í sveitinni.
Skrifað af Elín
12.04.2012 08:48
Engir hvolpar
Eitthvað fór nú úrskeiðis svo engir voru hvolparnir, en vonandi gengur betur næst.
Þökkum ykkur fyrir áhugann en verið bara í bandi þegar haustar.
Væntanlegt er got hjá Ice Tindra Ræktun, skoðið það, http://icetindra.123.is/
kv
Þórður og Elín
Þökkum ykkur fyrir áhugann en verið bara í bandi þegar haustar.
Væntanlegt er got hjá Ice Tindra Ræktun, skoðið það, http://icetindra.123.is/
kv
Þórður og Elín
Skrifað af þb
28.02.2012 18:26
Schafer hvolpur, langflottastur!!!
Mikið getur maður verið fallegur hvolpur
Skrifað af þb
07.02.2012 20:37
Febrúar 2012
Mikið rosalega var þetta gaman og veðrið frábært.
Rétt misstum af skráningarfrestinum á næstu sýningu, þannig að við verðum ekki með hundana sýnda í þetta sinn.
Tíkurnar bara hressar og farnar að bíða eftir að vori.
Skrifað af þb
Flettingar í dag: 236
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 93
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 35799
Samtals gestir: 5249
Tölur uppfærðar: 22.3.2023 18:07:55