Færslur: 2009 Ágúst

24.08.2009 20:57

Mjölnis hvolpar 1 árs


Þá eru hvolparnir orðnir 1 árs. Þetta er ótrúlega fljótt að líða. Ákveðið var að hafa smá afmælishitting, laugardaginn 22. ágúst, afmælisdaginn þeirra en því miður komust ekki allir, Astró Húsvíkingurinn var að reka hvali úr flóanum og Rökkvi(Alex) var að hrella óvelkomna gesti í vinnunni með yfirmanni(Inga) sínum öryggisverðinum, svo þeir voru fjarri góðu gammni. Svo Amíra, Yrja(Assa), Tyson(Anderson), Aþena og Ísold(Aríel) voru mætt kl 1400 við litlu kaffistofuna og genginn var slóði í norður ca 40 mín og étin bláber og krækiber (aðallega þb)og eftir göngu fengu sér allir kaffi, kakó(súkkulaði) og meðlæti nema Eisi hann var að dekstra Yrju(Össu) sína

Já,  hér er mynd af einu afmælishvolpinum,  prinsessan Amíra, á pallinum, nýkominn úr Esjugöngu, þar sáum við fallegt lambakjöt (á fæti) en hún var svona mátulega áhugasöm og kom að sjálfsögðu þegar kallað var á hana en systurnar Þruma og Úlfrún eru að koma úr labbitúr svo nú verður slegist um beinin

23.08.2009 22:13

Dagur 2

Jæja loks er allt búið í dag, frábær dagur og Schafer var valinn hundur sýningarinnar, hún Caty frá Gjósku ræktun. Anderson var örskammt frá því að hneppa 1 sætið, kemur næst og Amíra stóð sig þokkalega, hún var þreytt og náði sér ekki á strik. Okkur gengur bara betur næst

23.08.2009 09:26

Hills á sýningartilboði

Gaman að segja frá því, ef einhver skoðar þetta fyrir daginn, Hills pokinn er á 7 þús kall, afmælistilboð sem er nú aldeilis gott,

23.08.2009 09:22

Dagur 1

Jæja
Amría lenti í þriðja sæti og Anderson lenti í öðru sæti, aldeilis frábært hjá þeim, myndirnar ekki alveg að gera sig en sjáum hvort eitthvað verði sett inn.

Erum að koma okkur í gírinn fyrir daginn og nettur spenningur er um hvernig þeim danska líst á okkur, kannski maður æfi sig í leiðinni á dönskunni og skjóti á hann nettum frösum









20.08.2009 10:15

Afmælissýning HRFI

Nú styttist í afmælissýningu HRFI og verða tveir Mjölnishundar sýndir á henni. Mjölnis Amría og Mjölnis Anderson. Þau eru búin að vera í sýningarþjálfun hjá Heimsendahundum ásamt eigendum sínum og líta frábærlega út í dag. Spennandi verður að sjá í hvernig formi þau verða öll um helgina.  Reynum að smella inn mynd í kvöld af Amíru en hún er orðin stærri en mamma sín.  Ég held að það verði um 30 þýskir fjárhundar sýndir svo þetta verður aldeilis veizla

20.08.2009 10:06

Upplýsingar um þýskan fjárhund

Efst uppi hægra megin er kominn "hnappur" þýskur fjárhundur". Fann ansi skemmtilegan link um þýska fjárhundinn og mynd með nöfnum á því sem skoðað er, þannig að maður veit um hvað dómarinn er að tala þegar hann skrifar dóminn um hundinn
  • 1
Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 92
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 83823
Samtals gestir: 18718
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 16:00:44