25.08.2008 18:07
Litla daman tróð sér á fínan spena
Efst á myndinni er minnsti hvolpurinn í gotinu sem er stelpa og hún tróð sér yfir nokkur systki ni sín og að fínum spena og ýtti bróður sínum frá
Skrifað af þb
24.08.2008 17:05
Schafer hvolpur ca 2 daga, stærsti töffarinn
Hér er stærsti hvolpurinn í fyrsta goti Pollyönnu og erum við ekki enn búin að ákveða hvað þessi gaur á að heita. Takk fyrir allar kveðjurnar
Skrifað af þb
22.08.2008 22:09
Montin mamma 7 Schafer hvolpa
Stemming er mikil í gotkassanum.
Þökkum allar kveðjurnar
Þórður og Elín
Skrifað af þb
22.08.2008 12:33
Þá er goti lokið og sjö schafer hvolpar
Þá er lotunni lokið, og sjö Schafer hvolpar komnir á spena. Öllum heilsast vel en þetta tók tæplega 8 tíma. Fjórar tíkur og þrír rakkar.
Skrifað af þb
22.08.2008 09:39
Sex fallegir hvolpar
Þá hefur þýskum fjárhundahvolpum fjölgað um sex, og líklega er einn enn sem á eftir að líta dagsins ljós.
Skrifað af þb
22.08.2008 08:11
Þá eru Schafer hvolparnir orðnir 4
Allt gengur eins og í sögu og fimm hvolpar komnir núna, enn virðast einhverjir eftir
að koma
Skrifað af þb
22.08.2008 06:02
kl er 6 og tveir Schafer hvolpar komnir
Jæja smá kaffipása, en einn strákur og ein stelpa eru fædd og gekk bara vel, strákurinn er stór og þurfti aðeins að hjálpa honum í heimin, nánar síðar
Skrifað af þb
22.08.2008 00:12
Spennan magnast, nóttin verður vonandi skemmtileg
Nú er Polly með flest öll einkennin, másar eins og fýsibelgur, sleikir bangsann sinn í gríð og erg, og mjólk komin í spenana. Búin að reyna að fara undir alla sófa og rúm og róta jafnvel í rúmum. Núna liggur hún í gotkassanum og mænir á mig og kemur með smá kvartanir svona af og til. Ef þetta er ekki góðs viti, þá hvað er það? Nánar síðar hún er komin á fartina
Skrifað af þb
19.08.2008 10:19
Frekar mikið ólétt
Nú er farið að styttast verulega í gotið hjá Polly, líklega kemur það næstu 24 klst. Hún er samt glettilega létt á sér í göngutúrunum sem eru nú ekki langir. Líklega verða hvolparnir 5 til 7. Miklar hreyfingar hafa verið í bumbunni síðustu daga og Polly frekar hissa á þessum látum.
Skrifað af þb
15.08.2008 19:48
Styttist í Schafer hvolpana
Nú fer að styttast í Schafer hvolpana hjá Pollyönnu, þeir koma líklega næstu daga. Hún er orðin frekar mikið ólétt og þreytt og ferðunum í garðinn hefur fjölgað verulega. Gotkassinn er tilbúinn og var eftir uppskrift þekkts ræktanda og er Polly þegar farin að máta og hafa það notalegt í kassanum. Bumban er ótrúlega stór svo að okkur grunar að þýskum fjárhundahvolpum fjölgi nokkuð mikið ef allt gengur vel.
Skrifað af þb
29.07.2008 12:38
Schafer hvolpar rúmlega 3 vikna
Hérna eru þriggja vikna schafer hvolpar hjá Gjóskuræktun, nýkomnir úr gotkassanum og í stærra rými þar sem hægt er að skoða krílin.
Skrifað af þb
28.07.2008 18:36
Schafer hvolpar hjá Gjóskuræktun
Þá eru loksins komnir Schafer hvolpar. Gjóskuræktun fékk á dögunum 4 hvolpa sem nú eru orðnir 3 vikna. Ég ætla að reyna að fá mynd af hvolpunum og setja inn hér í vikunni.
Skrifað af þb
16.07.2008 23:04
Væntanlegt Schafer got
Væntanlegt Schafer got.
Í dag fór Pollyanna í sónar og var staðfest að hún er hvolpafull, sjá má myndir af foreldrum hér á myndasíðunni. Hvolparnir munu fæðast seinniparinn í ágúst. Pörunin var í júni og er pabbinn Odin von der Dolomiten (Úran) Töffarinn hér fyrir neðan!
Þessir hundar eru einstaklega skapgóðir og blíðir og verður gaman að sjá litlu dýrin
Í dag fór Pollyanna í sónar og var staðfest að hún er hvolpafull, sjá má myndir af foreldrum hér á myndasíðunni. Hvolparnir munu fæðast seinniparinn í ágúst. Pörunin var í júni og er pabbinn Odin von der Dolomiten (Úran) Töffarinn hér fyrir neðan!
Þessir hundar eru einstaklega skapgóðir og blíðir og verður gaman að sjá litlu dýrin
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 73
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 163086
Samtals gestir: 34277
Tölur uppfærðar: 3.5.2025 08:21:11