24.08.2009 20:57

Mjölnis hvolpar 1 árs


Þá eru hvolparnir orðnir 1 árs. Þetta er ótrúlega fljótt að líða. Ákveðið var að hafa smá afmælishitting, laugardaginn 22. ágúst, afmælisdaginn þeirra en því miður komust ekki allir, Astró Húsvíkingurinn var að reka hvali úr flóanum og Rökkvi(Alex) var að hrella óvelkomna gesti í vinnunni með yfirmanni(Inga) sínum öryggisverðinum, svo þeir voru fjarri góðu gammni. Svo Amíra, Yrja(Assa), Tyson(Anderson), Aþena og Ísold(Aríel) voru mætt kl 1400 við litlu kaffistofuna og genginn var slóði í norður ca 40 mín og étin bláber og krækiber (aðallega þb)og eftir göngu fengu sér allir kaffi, kakó(súkkulaði) og meðlæti nema Eisi hann var að dekstra Yrju(Össu) sína

Já,  hér er mynd af einu afmælishvolpinum,  prinsessan Amíra, á pallinum, nýkominn úr Esjugöngu, þar sáum við fallegt lambakjöt (á fæti) en hún var svona mátulega áhugasöm og kom að sjálfsögðu þegar kallað var á hana en systurnar Þruma og Úlfrún eru að koma úr labbitúr svo nú verður slegist um beinin
Flettingar í dag: 40
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 64
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 88560
Samtals gestir: 20666
Tölur uppfærðar: 17.5.2024 04:39:23